Ramminn brýnir raust sína
Fréttir
Áhugaverðar síður
04.03.2006 17:15:40 / ramminn

Á lífi

Góðan dag, gleðilegt ár og allan fjandann af sollis drasli:P Hef ekki verið að blogga neitt að undanförnu en það verður bara skýrt með því að ég er ekki með netið heima hjá mér þannig að það er erfitt að halda uppi bloggsíðu. Hins vegar fer það að breytast bráðum því að adsl draslið hefur náð mér og mun ég koma mér upp tengingu á heimili mínu mjög fljótlega. En jamm, bið að heilsa öllum og í guðsbænum, gangið hægt um gleðinar dyr;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 22:38:43 / ramminn

:)

Jæja, vill bara óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þakka öllum sem ég þekki fyrir góðar stundir á liðnu ári og vonandi hittumst við hress og kát á því næsta:)

Þangað til næst:
Jóla_Ramminn

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 15:56:43 / ramminn

Svona er lífið:P

jæja, þá er jólafríið farið að nálgast, gott?? það held ég nú bara, er nokkuð viss um að ég fari ekki í skóla eftir áramót, en vona bara að Hrafnhildur sjái sér nú fært að vinna með mér fyrir sunnan eða á Siglufirði;)hehe


Annars hefur verið margt og mikið að gerast upp á síðkastið, um þar síðustu helgi ákvað ég að skella mér á ball með skítamóral í sjallanum. Fór með Þresti og átti nú heldur betur að trylla líðinn.

Þar sem við erum náttlega frægir menn ég og Þröstur, var okkur boðið í sérstakt fyrirpartý með skímó gaurunum og ókeypis áfengi. Sú staðreynd að áfengið var ókeypis fór mjög vel í mannskapinn, þótt all nokkrir í þessu partýi hafi ekki náð að meika það fram að ballinu sjálfu. Horfði allavega 3 sinnum upp á það þegar dyraverðir héldu á ungum dömum út í lögreglubíl.

En svo kom loks að því og ballið byrjaði, ég og Þröstur vorum búnir að ákveða að láta ekki kvennastúss fara illa með okkur heldur reyna bara að skemmta okkur eins vel og við gætum. Það byrjaði allt rosalega vel, þar sem ég týndi Þresti þegar um 4 mínútur voru liðnar að ballinu. Fann hann þó fljótt aftur í faðmi ungrar snótar, sem ég hafði ekki góða sögu að segja af, þannig ég ákvað að láta þau í friði.

Arkaði um gólfið og ákvað að reyna að finna einhverja félaga sem gætu boðið mér upp í glas, þar sem ég hafði gleymt veskinu mínu upp á vist. Fann engan þannig ég ákvað að gerast sniðugur og setjast við barborðið og gera hosur mínar grænar fyrir skutlunni á barnum, ef bollan hefði ekki verið svona sterk í fyrirpartýinu hefði mér örugglega aldrei dottið í hug að gera þetta, þar sem konan sem var að vinna á barnum, var 24 ára módel.

En viti menn, ég náði að láta hana splæsa í heila 3 bjóra og 2 skot og svo símanr. Veit ekki hvort hún hafi gert þetta allt til þess að losna við mig frá barborðinu en ég ætla ekki að skemma þetta egó búst sem ég fékk, þannig ég held því fram að hún hafi verið að reyna við mig:D


En jæja, restin af ballinu var svo bara eitthvað rugl sem ég nenni ekki að skrifa um. En í staðinn ætla ég að segja ykkur frá síðustu helgi, en þá ákvað ég að gera mér dagamun og skreppa á sigló:)

Föstudagur: Lögðum af stað frá Akureyri um 4 leytið, en í bílnum voru ökumaðurinn síkáti Sigurbjörn, Shotgunnið sígraða Gunnar, aftursætis sponsið Ragnar, og kvenmannstryllirinn Birkir.


Ég var búinn að setja saman litla söngbók svo við gætum raulað eitthvað á þessari löngu leið heim, en áður en ég var búinn að stilla græjurnar, var Ragnar sofnaður, og áður en ég opnaði bókina var Birkir líka sofnaður. Eftir fyrsta lagið sem ég söng var Bjössi líka sofnaður, þannig ég ákvað að halda kjafti til að koma okkur öruggum heim:)

Ferðin gekk í allastaði vel, fyrir utan það þegar við keyrðum næstum aftan á einhvern fæðingarhálfvita, sem hefur án efa fengið ökuskírteinið sitt gefið út á Ólafsfirði. Maðurinn snarhemlaði í fljúgandi hálku, gaf ekki stefnuljós og ætlaði svo að beygja til vinstri inn á sveitabæ, munaði hársbreidd að við hefðum runnið á hann, en Bjössi sýndi góð viðbrögð og bjargaði okkur og bílnum.

Þegar ég kom heim beið mín kjúklingur að hætti mömmu og franskar, og get ég sagt ykkur það að ég hef ekki þurft að borða neitt síðan á föstudaginn, þvílíkt var borðað. Svo ákvað ég, gagnvart öllu sem ég hef staðið fyrir í lífinu, að taka föstudagskvöldinu rólega, fór og leigði mér spólu, og var svo bara í tölvunni.

Laugardagur: Vaknaði um 3 leytið og sturtaði mig, svo lá ég bara í leti með múttu að horfa á sjónvarpið fram að mat, klukkan hálf átta hringdi ég í Ragga frænda og við fórum niður á gervigrasvöll í fótbolta, mjög heilsusamlegt allt saman. Svo eftir það fórum við á rúntinn með Birki, þar sem ég fékk mér nokkra kalda og rúntuðum við svo lengi lengi, eða til 1, þá var ég nokkuð viss um að ég væri ekkert að fara að skemmta mér en annað átti eftir að koma í ljós.


Við ákváðum að kíkja heim til Salla, þar sem einhverjir krakkar sátu í rólegheitunum við að horfa á sjónvarpið. Svo kom Bjössi með þá hugmynd að við myndum fara í drykkjuleik, og það tóku ég, salli, sæsi, raggi og Birkir vel í.

Þessi leikur var sá lúmskasti sem ég hef nokkurntímnann farið í, og eftir að hann hafði verið spilaður í rúmlega klukkutíma, þurfti að sækja fötu fyrir mannskapinn enda áttu margir í erfiðleikum með að halda bjórnum niðri, þó svo að enginn hafi kastað upp í þetta skiptið:)

Svo endaði þetta á því að Salli náði á einhvern ótrúlegan hátt að velta stofuborðinu við, og rauðvín og bjór, glös og spil, hentust út um allt gólf, og nokkur hluti þessara efna, endaði á sokkunum mínum og buxum:P það er að segja rauðvínið endaði á mér:) Sem þýðir að nú á ég einu sokkapari minna og einum gallabuxum:) En magnað kvöld og vonandi verður þetta endurtekið sem fyrst:)


P.s Núna um næstu helgi er ball með Sálinni hér á Akureyri og hvetjum við í hnakkaklúbbi akureyrar, alla til að mæta, fólk getur haft samband við mig í gegnum msnið mitt prelli86@hotmail.com">sprelli86@hotmail.com en fyrirpartý verður í boði klúbbsins, og fólk þarf þó að koma með sitt eigið áfengi, en við reddum húsnæði.

Ramminn kveður


» 29 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 11:13:59 / ramminn

..:..:..:..:..:..:..:

Ég hef ekki skrifað lengi, en samt veit ég ekkert hvað ég á að skrifa um.. Þetta líf hérna á Akureyri er nú bara frekar rólegt, og ekki mikið til að vera glaður yfir eða dapur, en þó er ég farinn að hallast að því að vera frekar bara dapur heldur en glaður hérna, einhvernveginn virðist það bara virka betur:)

Skólagangann hefur gengið ágætlega þrátt fyrir það að ég sé kominn með frjálsa mætingu út af einhverjum leiðinda veikindum, en ætla þó ekki að kenna þessum veikindum um þessa ritstíflu sem ég hef verið haldinn uppá síðkastið. Reyndar hef lá netið niðri hérna á vistinni um nokkurn tíma, vegna þess að nokkrir ungir drengir ákváðu að gerast sniðuguir og dreifa dvergaklámi eða einhverjum andskotanum á milli sín í gengum innra netið hérna á vistinni, það komst náttúrulega upp og allt varð vitlaust og netið þar af leiðandi tekið af okkur.

Núna er netið komið aftur í lag, en er samt tekið af klukkan 1 á nóttunni til þess að Counter Strike gaurarnir fari nú að mæta í skólann og hætti að vera vakandi á nóttunni og sofandi á daginn:P


Annars er lítið að gerast hjá mér, kannski get ég sagt bara þetta venjulega, ég í einhverju fucki, og einhver kvennmál að fara til andskotans hjá mér, en hvað getur maður sagt, svona er maður bara og maður verður bara að taka þessu eins og maður, er það ekki? jú hélt það:)


Ramminn


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 20:14:46 / ramminn

Þéttur á kjentinum

jæja, hendi inn smá slúðri;)


Heyrst hefur:


Að ramminn þjáist af almennum einbeitingarskorti og bloggi lítið.. hvers vegna spyrja sumir?? Svara því á msn fyrir þá sem eru með mig þar;)


Að ég hafi verið í rvk og hafi skyndilega breyst í hnakkakvekendi, bleik skyrta, gallabuxur og nikita leðurbelti, ásamt bleikum lokk í eyrað og tungu. Get staðfest hnakkaskap, en ekki að skápurinn hafi opnast eins og fólk heldur.

Að félagi minn hafi heldur betur lent í því um helgina... og endað í 3some með 30 kalli og 18 ára stelpu, nafn hans verður ekki gefið upp.

Að það styttist óhugnalega í það að ramminn geti farið inn í búð himna(átvr) og verslað sér þar brjóstbirtu til að forðast bitran raunveruleikann.


Að það sé djamm hverja einustu helgi hér á Akureyri og ótrúlegasta fólk sé farið að stunda Sjallann allavega 2 í viku.

Að það sé rétt rúmur mánuður eftir af skólanum og ég sé ekki ennþá búinn að opna stærðfræðibókina... Haldiði að þetta sé hægt?

Að Gauti sé farinn að vinna hjá skiltagerðinni. Halda margir að hann sjái um það að þrífa veggjakrot af biðskyldumerkjum á miklubrautinni en svo er nú ekki;)

Að ég hafi sést inni í adam og evu á laugardaginn með Gauta og Árna Óla, vill taka það fram að ég var ekki að versla þar, heldur aðeins að hjálpa guttunum að velja unaðskrem og nuddolíu, ásamt forlátum löggubúning úr leðri, hvað þeir ætla með þessa hluti að gera, fylgir hinsvegar ekki sögunni.


Að það eigi að þurka ólafsfjörð út af íslandskortinu og koma upp aðstöðu þar í staðinn fyrir fólk með átröskun.


Að dópleitarhundarnir í vma hafi farið að gelta þegar þeir gengu fram hjá skrifstofu skólameistara, meistarinn sagði að rakspírinn hafi farið svona illa í þá, en við nánari athugun kom í ljós að kallinn var með nokkur grömm í skúffunni, en sagði þau ætluð til einkanota en ekki sölu.

ramminn


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 12:56:46 / ramminn

í eyðu:)

Jæja, er ekki kominn tími á eitt lítið blogg? held það bara. Það er nú eitthvað voðalítið að frétta héðan úr borg ljósana annað en það að snjórinn hylur land og vegi og maður kemst rétt svo í skólann fyrir kulda og ógeði:P


Ekkert eins skemmtilegt og að vakna í herbergi, þar sem hitastigið er rétt um frostmark og manni langar ekkert undan sænginni, en það hefur einmitt verið dálldið erfitt, að koma sér undan sænginni, og er farið að sjást aðeins á mætingunni hjá mér:P En það er ekkert sem ekki má laga:)


Humm, svo er víst eitthvað hörkudjamm hérna um helgina.. eitthvað framhaldsskólamót í fótbolta, og koma krakkar víðsvegar af landinu til að keppa. Ég þurfti að beila á þáttöku í þessu móti, þar sem ég hef verið að hlaupa í spik undanfarið og formið ekki upp á sitt besta, fólk sem trúir því ekki að ég sé að fitna má nú vita það að ég er búinn að þyngjast um 8 kg síðan ég kom hingað, þannig ég er orðinn eins og ég veit ekki hvað.. aðeins farinn að gildna allavega.

Á laugardaginn er svo ball í sjallanum, með Í Svörtum Fötum og er alls ekki víst að ég nenni þangað, enda er farið að bera dálldið mikið á eiturlyfjum og slagsmálum hérna og það er bara eitthvað shit sem ég nenni ekki að vera að dandalast í kringum.


Fljótlega fara svo dópleitarhundar að þefa af eistunum á manni í skólanum, en vma er komið í eitthvað samstarf með lögreglunni, en mikið hefur borið að sölu og vörslu eiturlyfja í skólanum að undanförnu,, sem er náttúrulega alls ekki nógu gott.

En jamm, legg bara til að allir sem þetta lesi, ákveði nú að fjölmenna á Akureyri, og taka þátt í nokkuð mögnuðu djammi, enda verður bærinn fullur af unglingum, og bara brjálað stuð.


Svo eitt í viðbót.. veit einhver um far á bíldudal, á morgun eða í dag, bráðvantar far þangað, enda er þar yndislegasta mannvera í heimi;) love ya:)

ramminn


» 22 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 13:32:04 / ramminn

Rekkjunauturinn grami

jæja.. nú liggur ramminn í rekkju og getur enga björg sér veitt


Litli kúturinn er nefnilega lasinn og býst þessvegna við að þetta séu hans síðustu skrif:(

Þetta eru reyndar fyrstu veikindin mín þar sem ég er virkilega veikur, ekki með matareitrun eða eitthvað þannig:P en fimmtudagarnir hér á ak hafa ekki reynst mér nógu vel undanfarið þar sem maður endar alltaf á dátanum í snittum og með því:)


Í kvöld býst ég bara við því að vera rólegur, enda fær maður heimsókn frá vinkonu sinni núna seinnipartinn og áætla ég að horfa á c.a 4 spólur með henni, gæti orðið tilbreyting frá mínu fyrra líferni:)


Svo um næstu helgi, þá er vetrarfrí hjá okkur hér í vma, og verður frí á föstudag laugardag, sunnudag, og svo mánudag, nokkuð nett og býst ég fastlega við því að kíkja heim og sjá hvernig fólk hefur það almennt þar:)

Annars býst ég ekki við að blogga neitt um helgina þar sem ég verð ábyggilega upptekinn við að stunda kynlíf (ef til vill bara í huganum en þó veit mar aldrei) og eins ræktina og svona, einnig hefur maður verið að stunda ljósalampana grimmt ásamt sundinu þannig að það er alltaf nóg að gera hjá manni, svo fer fótboltinn að bætast inn í þetta hjá mér:)

svona í lokinn ætla ég að láta nokkrar sögur fljóta með sem ég heyrði útundan mér um daginn:


Lítil stelpa kom hlaupandi til mömmu sinnar.. Mamma mamma má ég fá kex??? jájá ástin mín, það er í efstu hillunni..              En mamma ég er ekki með neinar hendur..:S:)


Lítill stelpa spyr mömmu sína á aðfangadag, Mamma mín, afhverju fæ ég engar jólagjafir??
Það er af því að þú ert með krabbamein vinan...


finnst þetta dálldið ógeðslegt, en fólk virðist hlægja að þessum viðbjóði:P


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 14:28:09 / ramminn

Slúðurpakkinn

Slúðurpakkinn

Heyrst hefur:


Að ramminn sé hættur að drekka í bili, ætli allavega að taka sér 1 og hálfs til 2mánaða pásu, mun verða driver fyrir þá ógæfumenn sem ákveða að leggja sér vín til munns um helgar


Að fjör hafi verið í aftursætinu á bílnum Þrastar síðasta föstudag, og fólk almennt ekki sátt við atburðinn sem þar átti sér stað. Þetta átti sér þó allt stað með samþyki Þrastar og endaði málið á léttu nótunum.


Að Rúnar Óli hafi sett inn umsókn í herra ísland í von um að baka félaga sinn Salmann, með miklum þokka og liprum hreyfingum.


Að ég sé búinn að vera í tíma frá því ég byrjaði í skólanum sem ég á alls ekkert að vera í. Einhver smá ruglingur með stundarskrána


Að Arna sé að auglýsa eftir helgarpabba, sjá fréttablaðið og mbl.is


Að ég sé kominn í lokk í tunguna og vilji kvenkynskennarar í vma ólmir fá að prófa franskan koss, pff eins og maður sé einhver kennarasleikja::


Að Raggi frændi minn stundi ljósabekkina grimmt um þessar mundir. Ætli það sé dama í spilinu??


Að Ég og Rúnar Óli séum byrjaðir á fullu í ræktinni og ætlum að koma okkur í hörkuform til þess að æfa fótbolta í vetur. Drekkandi prótín og kjammsandi á kreatíni:)


Að ég sé jafnvel að hugsa um að kaupa mér íbúð hérna á akueyri í sumar og flytja frá sigló.. get ekki staðfest þann orðróm

Að bíllinn minn sé búinn að vera bilaður í 3 vikur, það get ég staðfest.


Að Brynjar Skapta stærðfræði kennari hafi farið 3 í ríkið í síðustu viku.


Að Katrín, linda og allt krúið sé að gefast upp á reykjavíkinni og vilji helst aftur á sigló vegna söknuðar á fólkinu, þó sérstaklega söknuðar á mér.


Að Ég hafi sótt um vinnu í gallup og hafi verið neitað um vinnu því ég væri ekki með nógu ,,harða rödd,, spurði kellinguna hvort það væri ekki nóg að ég væri með hann harðan mestmegnis úr deginum, var ráðlagt að tala við rauða torgið.


Að frændi minn hafi unnið keppnina fallegasti maður bandaríkjanna, segi nú bara að það komi mér ekki á óvart, enda var maður með hann í stífu prógrammi í sambandi við framkomu, limaburð og háttarlag almennt.

jæja þá er það víst komið, vill taka það fram að þetta er að mestu til gamans gert og bið ég fólk um að verða ei fúlt þó það sé haft að skotspæni í slúðrinu


Ramminn


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 10:40:16 / ramminn

Gaman aðessu:)

Vill koma því á framfæri að þótt ótrúlegt sé, var ég ekki í slagsmálum í gær:P

Hins vegar er það reyndar ekki mér að þakka, þar sem 12 strákar ætluðu að berja mig um leið og ég hefði komið út úr bílnum sem ég var í.. en það var enginn annar en Þröstur, bílddælingur með meiru, sem kom og reddaði hlutunum:) Takk Þröstur


Annars er allt gott að frétta héðan frá Akureyri:) ball í kvöld með Jet Black Joe og að sjálfsögðu lætur maður sig ei vanta þar:)


En nóg í bili

Ramminn


» 32 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 20:49:05 / ramminn

Klukk

Jæja ég var víst klukkaður þannig að hér koma 5 staðreyndir um mig


1. Ég er minnsti maðurinn á vistinni, og ábyggilega minnsti maðurinn í skólanum líka.

2. Ég á það til að reyna að vera alltaf öðurvísi en aðrir(tala þá um bíl, hárgreiðslu, fatnað og bara allt)

3. Mér finnst ekkert skemmtilegra heldur en að djamma í góðum félagsskap og fara svo heim að spila matador eftir djammið.

4. Ég syng alltaf þegar ég er í sturtu og þá yfirleitt lög með Jessicu Simpson og Tony Braxton. Á það til að taka smá Snoop inn á milli en missi mig þá stundum í breikinu, og snýst eins og skopparkringla á sturtubotninum.

5. Ég á það til að tala dálldið mikið í skólanum og láta eiginlega allt flakka, sérstaklega í félagsfræði.. og þarf Hrabba stundum að stoppa mig af þegar ég er farinn að tala með aðeins of mikilli innlifun um kynlíf fyrir fermingu og hluti sem snerta það.


Ramminn klukkan svo:

Hönnu Maríu
Gunnu Finna
Milu Mandarinu;)
Dodda Birgis
Sigga Poka

vissi ekki hvað ég ætti að gera með 2 síðustu;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 20:27:08 / ramminn

Litli maðurinn

Einu sinni var mjög lítill maður, sem bjó á mjög litlum stað úti á landi.

Litli maðurinn átti það til að drekka görótta drykki sem ollu því að litli maðurinn hélt að hann væri miklu stærri og sterkari en hann var í raun og veru.


Oft kom það fyrir að fólk ruglaðist á þessu litla manni og boxpúða og lét því reiði sína bitna á honum.. Það fannst litla manninum leiðinlegt og varð hann stundum dálldið dapur, ef ekki leiður þegar það gerðist.

Eitt sinn kom það meira að segja fyrir að litli maðurinn hljóp kviknakinn inn á umferðareyju og stóð þar á Adam klæðum einum, í leit að hinum heilögu nærbuxum.


Eins og þið sjáið á litli maðurinn til að verða allveg snarbilaður þegar hann innbyrðir görótta drykkinn, þannig að nú liggur litli maðurinn í þungum þönkum og íhugar alvarlega hvort hann eigi jafnvel bara að hætta að innbyrða görtótta drykkinn fyrir fullt og allt. Reyndar er litla manninum farið að þykja vænt um þennan drykk, þar sem hann hjálpar honum að losna við feimni sem á það til að sækja á hann. En nú er svo komið fyrir að litli maðurinn trúir því að það sé skárra að vera feiminn og á lífi, en geðveikur og dauður.


Ramminn


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.09.2005 22:41:02 / ramminn

Á djamminu á sigló!!!!!!!!

Þessi helgi gerði mér það ljóst að ég á ekki að vera að drekka... Allavega ekki á Siglufirði, svo virðist sem að ég nái alltaf að koma mér í einhver leiðindi þótt ég sé ekki einu sinni að sækjast eftir því og geri ekkert af mér..

Vegna þess, sit ég hér aleinn í herb. 229 á vistinni og býð þess að geta komist í samband við tannlækni sem getur sparslað aðeins í kjaftinn á mér, eftir að maður einn ákvað að ruglast á mér og hurð og banka aðeins í mig.

Vegna skjótra viðbragða starfsfólks bíó cafe er ég á lífi í dag, en Gunna frænka bar mig inn í eldhús þar sem hún kældi kútinn með forlátum klaka enda kinnbeinið bólgið og bogið og tönn brotin, sem mér finnst verst, því að ég þoli ekki að fara til tannlæknis, það er ábyggilega eitt af því versta sem ég geri.

En svo er málið held ég að fara til Boga um næstu helgi:) en kallinn var víst búinn að lofa að halda eitt stykki partý, og auðvitað lætur maður sig ekki vanta á svo merkilega samkomu.

Svo hef ég heyrt að sjálfur smiley gæti látið sjá sig hér norðan heiða og mun maður þá draga hann með sér á djammið, enda er kallinn farinn að slappast í djamminu þarna fyrir sunnan, allavega heyrir maður engar sögur af honum:)

Gauti er ekki enn búinn að setja inn myndirnar frá Færeyjum, þetta náttlega gengur ekki Gauti minn:) ég er alltaf að reyna að rifja upp hvað gerðist þarna, en það er bara black out, þannig að þessar myndir gætu hjálpað mér að muna hvað gerðist eiginlega þarna:) Man bara eftir því þegar við fórum í sund, og það var nú ekki beinlínis ferð til fagnaðar fyrir mig, þar sem ég eyddi mestöllum tímanum inni á klósti, ælandi eins og múkki.. þessi matareitrun eltir mann greinilega;)

En jæja:) þá er þetta bara komið gott í bili:) er að fara í nudd..

Ramminn


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 17:35:15 / ramminn

Ég er á lífi

Jæja þá gefur maður sér loksins tíma til að líta upp úr bókunum og fara yfir atburði síðustu daga..


Ætla að byrja á fimmtudeginum síðasta... Þá var ég í mínum mestu makindum að læra þegar tveir villtir herramenn rifu mig með sér í lítin leiðangur. Sá leiðangur endaði á dátanum, þar sem við, 3 herramann á besta aldri ákváðum að tylla okkur og njóta góðra veiga úr gull bikurum. Stuðið væri með besta móti þó svo að fimmtudagurinn væri og skóli daginn eftir


Föstudagur: Skólasókn 0% vegna krónísks höfuðverkjar og magaverks. Gæti stafað af skemmdum mat í matsalnum. Fór síðan heim til Salla með Bjössa þar sem við fengum okkur smá öl og höfðum það gott. Upp úr klukkan 11 ákváðum við svo allt í einu að skella okkur á ball með í svörtum fötum. Minnisleysi hófst klukkan hálf 1.

Laugardagur: vaknað snemma og tekið 30 magaæfingar, sem urðu til þess að ég þurfti að eiga alvarlegar samræður við heimilspostulínið, sjaldan hefur því verið misþyrmt eins illa. 30 mín síðar bankaði pípari og spurði hvort ég hefði nokkuð verið að leika mér að því að sturta einhverju stóru niður í klóstið, svo sem ketti eða einhverju.. Ég náttlega neitaði öllum ásökunum og hélt svo áfram að sofa.

Laugardagskvöld: Ég og Salli mældum okkur mót á sjallanum þar sem papaball var að
hefjast, Bjössi tók okkur smá rúnt áður, sem varð til þess að ég hellti yfir mig bjór þannig það leit út fyrir að eg hefði migið á mig..

Fékk sem betur fer buxur lánaðar hjá Salla. Svo skelltum við okkur beint á ballið.. Við sátum við barinn ég og Salli og ákváðum þar að nú skildi heldur betur tekið á því. Salmann, eða Hannes eins og hann vildi láta kalla sig á þessu balli, fór á kostum og hrakti hvern kvenmanninn á fætur öðrum í burtu.. t.d sat ég með einni við barinn og var að bjóða henni soutern comfort og fínerí.. Kemur þá ekki Hannes (salli) gjörsamlega ofurölvi.. sest hliðiná henni og segir... Hann er að hella þig fulla til þess að hann geti riðið þér í nótt.


Sjaldan eða aldrei hef ég séð kvenmann klára eins snögglega úr glasinu, og sjaldan eða aldrei, séð kvenmann vera svona fljótann að koma sér í burtu. En kvöldið endaði bara vel.. ég var náttlega ekkert að hözzla þar sem ég er búinn að finna ást lífs míns og þarf því ekkert aðra kvenmenn:)


Sunnudagsmorgun: Vaknað snemma við það að Þröstur var að þefa að mér.. Ákváðum svo að fara í sund, ég Þröstur og Rúnar Óli til að skola af okkur djammrykið.. Aldrei vaknað svona hress áður þó:) sundið gerði manni greinilega gott því að ég er búinn að mæta í alla tíma í skólanum síðan ég fór í það:)

En jamm, orðið gott í bili held ég.

Lofa að blogga aftur um leið og Gauti setur færeyjarmyndirnar inn:)

ps. kem heim um helgina með all rosalega hárgreiðslu:)

ramminn


» 23 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 15:17:05 / ramminn

Meget syg

Nú er ég viss um að ég sé að deyja:s Loksins segja margir en ég vill halda því fram að jarðvist minni eigi ekki að ljúka strax, það er svo margt sem ég á eftir að gera.

T.d bara í dag, er ég að fara og fá mér lokk í eyrað, og svo í ljós í kvöld, þannig að ég hef eiginlega ekki tíma í það að láta hjartað hætta að slá. Plús það að ég er svo forvitinn að ég leyfi mér það ekki.


En nóttin hefur samt verið argasta helvíti og einkennst af uppköstum og einhverju ógeði, ég er skárri núna, hef ekki ælt í 20 mínútur og gott ef að það er ekki met.


Er búinn að ákveða það að kíkja heim á siglufjörð á föstudaginn, en fara svo til Húsavíkur á laugardag, þar sem ég ætla að horfa á stjörnum prýtt lið ks reyna sig gegn heimamönnum í völsung, þetta er svona duga eða drepast leikur, því ef KS tapar eða gerir jafntefli eru þeir fallnir, þannig að það kemur ekkert til greina nema sigur:P


Verð þar í fagra kvenna hópi sem allar styðja Völsunga og gæti orðið vart við skoðannaágreining, en ég ætla ekki að ganga svo langt og segja að slagsmál gætu litið dagsins ljós:) En aldrei að segja aldrei samt hehe:)


Svo er eitthvað innflutningsdæmi hjá Boga og svo ball með í Svörtum fötum um kvöldið þannig að ég er svona að spá í hvað maður á að gera:) Hvort maður ræni ekki 2-3 húsavíkur dömum og skelli sér fyrst í partý hjá Boga, og svo á ballið, allt óákveðið og á bara eftir að koma í ljós:)

En ég held að ég þurfi að fara að kasta upp, þannig að ég kveð bara í bili


Ramminn


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.09.2005 22:46:01 / ramminn

Smá blogg til að friða ógæfusálir

Helgin sem nú er liðin, var sú undarlegasta sem ég hef lifað lengi vægast sagt:p

Förum ekkert nánar út í það, segi bara að það var bæði djammað, grátið, og hlegið..


Gauti er hinsvegar ekkert að standa sig í sambandi við að skella inn myndum af Færeyjarferðinni og held ég að það endi með því að ég þurfi að gera mér ferð inn á sigló og gefa honum spark í óæðri endann;)


Annars gengur skólinn vel, eða það er allavega ekki enn búið að reka mig úr honum, né af vistinni, þannig að ég lít þannig á málin að allt gangi bara frekar vel;)


Jæja, er farinn að læra í stærðfræði og verslunarreikning, sem eru btw ógeðsleg fög;)


Ramminn out


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5